Hefð fyrir spillingu á þingi.

Hvað höfum við að gera með 63 menn á þingi ef formenn flokkana semja um niðurstöður mála á leynilegum fundum?

Ég vill fá fulltrúalýðræði þar sem 63 þingmenn greiða atkvæði um mál á opnum fundum. Burt með spillinguna.


mbl.is Birgitta mátti ekki segja frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Manni þykir ótrúlegt að það geti verið refsivert að upplýsa þjóðina um málefni sem snerta hana. Þörfin fyrir gegnsæi verður alltaf meira og meira áberandi og mikið vona ég að allir flokkar leggi áherslu á að upplýsa þjóðina á komandi kjörtímabili. Við eigum að fá að vita, þessar ákvarðanir skipta okkur miklu máli!

Hildur Sif Thorarensen (IP-tala skráð) 26.3.2013 kl. 23:47

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Flokksræðið í allri sinni mynd görið þið svo vel!

Sigurður Haraldsson, 27.3.2013 kl. 10:31

3 identicon

Þjóðin á heimtingu á að vita o. s. frv....en ég veit um nokkra útlendinga sem koma til með að græða vel á þessum trúnaðarupplýsingum sem þingmaðurinn varpaði yfir heimsbyggðina. Það hlusta ekki bara Íslendingar.

L.Óskar (IP-tala skráð) 27.3.2013 kl. 14:39

4 Smámynd: Heimir Hilmarsson

Í einhverjum tilfellum eru trúnaðarfundir réttlætanlegir vegna til dæmis þjóðarhagsmuna. Það réttlætir ekki að þrír til fimm formenn semji um niðurstöður allskyns frumvarpa í bakherbergjum í skjóli trúnaðar.

Ef fundir Alþingis þar sem 63 fulltrúar ræða og greiða atkvæði um frumvörp eru eingöngu til þess fallnir að formlega afgreiða þau mál sem þegar er búið að afgreiða á leynifundum þessara formanna, þá getum við lokað Alþingi.

Heimir Hilmarsson, 1.4.2013 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband