Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2010

Umgengnisréttur barns

Úr gögnum hæstaréttardóms:
"Niðurstaða
Í barnarétti er það grundvallarsjónarmið að barn eigi rétt á að hafa samskipti við báða foreldra sína eftir því sem kostur er. Þessi réttur er svo ríkur að hann er verndaður af 3. mgr. 9. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og er einnig talinn verndaður með 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sbr. lög nr. 62/1994. Í barnalögum nr. 76/2003 eru einnig skýr ákvæði um þennan rétt.
Samkvæmt 46. gr. barnalaga á barn rétt á að umgangast með reglubundnum hætti það foreldra sinna sem það býr ekki hjá, enda sé það ekki andstætt hagsmunum þess. Við skilnað eða slit á sambúð hvílir sú skylda á báðum foreldrum að grípa til þeirra ráðstafana sem við verður komið til að tryggja að þessi réttur barnsins sé virtur. Í 47. gr. laganna segir að foreldri sem barn býr ekki hjá eigi í senn rétt og beri skylda til að rækja umgengni og samneyti við barn sitt. Samkvæmt 5. mgr. 28. gr. laganna er foreldri sem fer eitt með forsjá barns síns skylt að stuðla að því að barn njóti umgengni við hitt foreldri sitt nema hún sé andstæð hag og þörfum barns að mati dómara eða lögmælts stjórnvalds. Það eina sem getur skert þennan rétt eru því hagsmunir barnsins sjálfs."


Íslensk stjórnvöld eru að brjóta á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindasáttmála Evrópu með því að koma ekki í veg fyrir umgengnistálmanir með afgerandi hætti.
mbl.is Stjórnvöld verndi íslensk börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsanleg tálmun?

Ekki er enn ljóst hvort um morð er að ræða en vissulega getur þetta verið endanleg tálmun af hendi móður.

Reynist grunur um morð vera veruleikinn, þá á þetta að vera okkur víti til varnaðar. Umgengnistálmanir eru grafalvarlegt mál.

Íslensk stjórnvöld hunsa viðvörunarorð umgengnisforeldra í tálmunarmálum líkt og í Bretlandi. Það er ekki spurning um hvort heldur hvenær við fáum svona mál hér.


mbl.is Grunur um barnamorð í Edinborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband