Bloggfærslur mánaðarins, desember 2012
Það sem má ekki tala um
19.12.2012 | 00:34
63% unglinga sem fremja sjálfsvíg koma frá föðurlausum heimilum
85% allra barna með hegðunarvandamál koma frá föðurlausum heimilum80% þeirra sem nauðga vegna vanrækslu og reiði koma frá föðurlausum heimilum
71% þeirra sem hætta í framhaldsskóla koma frá föðurlausum heimilum70% ungra afbrotamanna í stofnunum hins opinbera koma frá föðurlausum heimilum
85% allra ungra fanga ólust upp á föðurlausum heimilum
Áhrif skilnaðar og föðurleysis á börn
Móðir Lanza var líka fórnarlamb | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hagstofa Íslands óhæf!
6.12.2012 | 14:40
Rangar upplýsingar eru á margan hátt verri en engar upplýsingar. Þó með þeirri undantekningu að ef rangar upplýsingar eru skoðaðar með gagnrýnum augum og brugðist er við því sem aflaga fer.
Hagstofa Íslands hefur gefið ranga mynd af afkomu íslenskra heimila um langan tíma og þrátt fyrir vitneskju stofnunarinnar um þá kerfisvillu sem til staðar er, þá leitast stofnunin ekki við að lagfæra villuna.
Í skýrslu nefndar um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum[1] kemur fram að þær fjölskyldugerðir sem verst eru settar eru einstæðir foreldrar sem deila ekki lögheimili með barni. Þessir foreldrar eru skráðir einhleypir barnlausir einstaklingar í rannsóknum Hagstofu Íslands ef undan er skilin sú rannsókn sem Hagstofan gerði fyrir þessa skýrslu.
Þessar verst stöddu fjölskyldur íslensks samfélags eru þær fjölskyldur sem bera ábyrgð á að sinna börnum sínum með umgengni án alls stuðnings frá ríkinu.
Hagstofustjóri, Ólafur Hjálmarsson, segir að það þurfi að kryfja til mergjar með greinargóðum hagtölum aðrar tegundir heimila en einstæðra umgengnisforeldra, áður en réttlætanlegt verður að nota peninga í þennan sennilega fátækasta hóp Íslands. Orðrétt segir hagstofustjóri í svari til Umboðsmanns Alþingis:
"Það er ekki á dagskrá Hagstofunnar í dag að gera afmarkaða rannsókn á einstæðum meðlagsgreiðendum, nema sérstakt tilefni krefðist þess. Bæði kostar það talsverða fjármuni að framkvæma slíka rannsókn, auk þess liggja önnur brýnni verkefni fyrir og aðrar tegundir heimila bíða þess að fjárhagur þeirra sé krufinn til mergjar með greinargóðum hagtölum."
Vísvitandi er þannig Hagstofa Íslands að birta villandi tölur um afkomu heimila ár eftir ár.
Ein villan sem Hagstofan setur fram er að þegar talað er um ráðstöfunartekjur, þá er meðlag talið til ráðstöfunartekna hjá meðlagsgreiðanda en ekki hjá meðlagsþega. Það er jafn rangt og að telja útborguð laun til ráðstöfunartekna hjá launagreiðanda en ekki hjá launþega.[2]
Þannig mælist umgengnisforeldri sem greiðir meðlag með þremur börnum við lágtekjumörk þegar ráðstöfunartekjur þess eru 80.910 kr. Engin fjölskyldugerð getur mætt lágmarksframfærslu með svo lágar ráðstöfunartekjur, hvað þá þriggja barna einstætt foreldri. Til samanburður þá mælist einstætt þriggja barna lögheimilisforeldri við lágtekjumörk þegar ráðstöfunartekjur þess heimilis eru 364.530 kr.
Það segir sig alveg sjálft að þessi framsetning Hagstofu Íslands er ekki til þess fallin að hjálpa bágstöddum fjölskyldum heldur mun frekar til þess að ná fram pólitískt þóknanlegum niðurstöðum.
Réttast væri að banna Hagstofu Íslands að gefa út meira efni um afkomu fjölskyldna þangað til forsendur hafa verið leiðréttar. Jafnframt ætti að taka úr birtingu allar þær röngu upplýsingar sem Hagstofan hefur haldið á lofti um langt árabil.
[1] Skýrsla nefndar um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum. http://www.humanrights.is/media/frettir/Skyrsla_nefndar_um_stodu_barna_i_mismunandi_fjolskyldugerdum.pdf
[2] Umsögn Heimis Hilmarssonar við þingsályktunartillögu, mál nr. 152. http://www.althingi.is/pdf/umsogn.php4?lthing=141&dbnr=564
Lágtekjufólk á ekki fyrir útgjöldum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)