Hvaða kjöt borðum við?

Nú er það ljóst að fjöldi matvælafyrirtækja á Íslandi nota ólögleiðar aðferðir til þess að spara.

Hvað geta matvælafyrirtæki þá gengið langt, hvar eru mörkin dregin?

Hundar, kettir, kanínur, rottur ... Hvað erum við að borða á veitingarhúsum? Hvað er í kjötfarsi? Hvað er í "nauta" hakki?

Ef það kemur nú í ljós að veitingarhús hafi notað hunda og ketti í stað annars kjöts, munu þá fréttatímar fyllast af fréttum um að hunda og kattakjöt sé alls ekki hættulegt til neyslu eins og með iðnaðarsaltið?

Þarf ekki bara almennileg viðurlög við svona brot sem varla geta verið annað en vísvitandi.


mbl.is MS innkallar fimm vörutegundir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómstólar viljandi að skapa sér fordæmi?

Eru dómstólar nú að skapa sér viljandi fordæmi með því að koma mönnum undan refsingu vegna lengdar rannsóknar?

Það er ljóst að þeir aðilar sem eru grunaðir um að hafa komið Íslandi í þrot með óheiðarlegum og ólöglegum grófum brotum í fjármálageiranum hafa sótt rannsókn nú um langan tíma.

Enginn þeirra mun fá refsingu ef dómstólum tekst að skapa slíkt fordæmi að ef rannsókn er löng þá sleppi brotamaður án refsingar.

Ef þetta er í alvörunni að gerast, má þá ekki bara leggja niður dómstóla? Verðum við þá ekki bara að leyfa fjölmiðlum að dæma hægri vinstri án nokkurrar rannsóknar? Það er eini dómurinn sem þessir aðilar virðast ætla að fá? Það verða að vísu álíkamargir saklausir dæmdir og sekir því fjölmiðlar eru brigðulir, en stærstu glæpamennirnir verða ekki dæmdir öðruvísi ef fram fer sem horfir.


mbl.is Skilorð vegna dráttar á rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börn lítils virði fyrir lögum

Hvað veldur því að það er 16 ára fangelsi við því að nauðga ókunnugum en aðeins 12 ára fangelsi fyrir að nauðga barni sínu? Já, og jafnvel mest 8 ára fangelsi fyrir að nauðga barni sínu sem er á aldrinum 16 til 18 ára?

Er það minni nauðgun að nauðga sínu eigin barni en einhverjum ókunnugum?

Í mínum huga er það stærra brot þegar foreldri nauðgar barni sínu. Hvað getur verið verra en að sá sem hefur það ábyrgðarmikla hlutverk að vernda barn sitt fyrir hvers kyns ofbeldi skuli brjóta svo alvarlega gegn því?

Er ekki eitthvað að löggjöf sem telur það léttvægari nauðgun? 

Væri ekki réttara að hámarks refsing fyrir nauðgun væri sú sama, hver sem á í hlut? Svo væri hægt að bæta við auka refsingu fyrir foreldra sem fara svo illa með það traust sem þau hafa sem foreldri barns. Það mætti bæta við öðrum 16 árum fyrir það að bregðast barni sínu með þessum hætti.

194. gr. Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann með því að beita ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti.

200. gr. Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við barn sitt eða annan niðja skal sæta fangelsi allt að 8 árum og allt að 12 ára fangelsi sé barnið yngra en 16 ára.

 

Ef einhver veit rökin fyrir því að það er minni refsing fyrir það að nauðga sínu eigin barni en einhverjum öðrum, þá vill ég heyra þau.


mbl.is Grunaður um kynferðisbrot gegn dóttur sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðför að börnum

Ég hef lesið marga dóma og sálfræðiálit í tálmunarmálum. Í málinu sem Petrína vísar í þá kemur það fram ítrekað að móðirin ber ábyrgð á ástandinu. Stelpunni sem um ræðir lýður vel hjá föður sínum.

Petrína gefur því ekki séns að þarna geti hagsmunum barna verið kastað fyrir hagsmuni tálmunarforeldris.

Af hverju lætur löggjafinn umgengnisforeldrið í þá stöðu að fara fram á dagsektir, fara fram á fjárnám, fara fram á innsetningu?

Öll úrræði sem umgengnisforeldri hefur eru til þess fallinn að gera umgengnisforeldrið að vonda foreldrinu og tálmunarforeldrið að fórnarlambi.

Dagsektir renna í ríkissjóð en þegar innheimtubréfið kemur á heimili barns, þá stendur í bréfinu að umgengnisforeldrið sé að hirða þessa peninga. Þeir eru teknir í nafn umgengnisforeldris.

- Berum það saman við meðlag sem innheimt er í nafni Innheimtustofnunar en rennur í vasa lögheimilisforeldris.

Fjárnám, sem er undanfari innsetningar. Það birtist stefna á heimili barns þar sem stendur að umgengnisforeldrið ætli að gera barnið heimilislaust. Peningarnir renna í ríkissjóð, en umgengisforeldrið er gert ábyrgt fyrir óförum tálmunarforeldrisins og þar með ábyrgt fyrir því að barnið er jafnvel að missa heimili sitt.

Innsetning, þar sem barnavernd er látin sækja barn, sem tálmunarforeldri stendur yfir með ógnun gegn barninu þannig að barnið má ekki og þorir ekki að fara í eigin vilja. Ef tálmunarforeldrið býr til mikil læti og er ógnandi þannig að það þarf lögreglu til, þá er það umgengnisforeldrinu að kenna.

Íslensk löggjöf hefur slegið skjaldborg um tálmunarforeldra. FJölskyldusvipting er ofbeldi sem löggjafinn leggur blessun sína yfir með hagsmuni lögheimilisforeldra í huga (95% mæður).

Börnin eru látin þjást og auk þess þjást margar fjölskyldur, feður, ömmur, frænkur, systur, bræður, afar og frændur sem hafa verið svipt með ólögmætum hætti einum  einstaklingi úr fjölskyldunni.

Í mínum huga eru þeir sem horfa framhjá ofbeldi á börnum líka sekir í því ofbeldi sem börn þurfa að þola.

Ráðamenn þjóðarinnar ættu að hugleiða það.


mbl.is Hagsmunir barna hunsaðir í forsjárdeilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ráðherra að leggja blessun sína yfir mannréttindabrot?

Ögmundur/Halla hafa ákveðið að taka út innsetningarákvæði úr barnalögum, en ákvæði þetta var sett á til að koma á umgengni í þeim málum þar sem tálmunarforeldri hefði einbeittan brotavilja og léti ekki af tálmunum við vægari úrræði.

Innsetning var sett inn í íslensk barnalög 2003 til að koma til móts við álit Mannréttindadómstóls Evrópu um að þau ríki sem ekki legðu sig fram við að stöðva umgengnistálmanir brytu á 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu.

Ég get alveg tekið undir það að innsetning með þeim hætti sem hún er framkvæmd á Íslandi með alla fjölmiðla ofan í hálsmálinu á tálmunarforeldrinu er ekki það sem barn þarf.

Hins vegar ef innsetning var sett inn til að koma í veg fyrir að ríkið væri að fremja mannréttindabrot, þá þarf að koma annað úrræði í staðinn. Annars er verið að lögleiða mannréttindabrot.

Réttur barnsins til að þekkja og njóta umönnunar foreldra sinna er brotinn með tálmunum. Þegar foreldri brýtur á barni sínu með þessum hætti þá eiga að vera afleiðingar.

Lög án afleiðinga eru ólög.

Það er óeðlilegt að foreldri sem brýtur þannig gegn barni sínu haldi forsjá barns.

Það er óeðlilegt að ríkisvaldið horfi fram hjá því að foreldri brjóti þannig gegn barni.

Það er með öllu óeðlilegt að það megi ekki refsa foreldri fyrir að brjóta þannig gegn barni.

Fjölmörg ríki leitast við að uppfylla 8. gr. mannréttarsáttmála Evrópu með ýmsum hætti þó Norðurlönd komi þar aftarlega og Ísland aftast.

Í Belgíu er þriggja ára fangelsisvist við umgengnistálmunum, (e. parental kidnapping)

Í Frakklandi er tveggja ára fangelsi við umgengnistálmunum.

Ungverjaland var dæmt til að greiða föður á sjöttu milljón ísk. vegna brots á 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu með úrræðaleysi í umgengnistálmunum.

Ástralía, Kanada og mörg ríki Bandaríkjana eru með refsingar við umgengnistálmunum.

Í mínum huga þarf ekki að fangelsa neinn vegna umgengistálmana, það þarf ekki innsetningu til að koma á umgengni. Það þarf einfaldlega að svipta tálmunarforeldri forsjá barnsins og láta barnavernd sjá til þess að forsjáin fari til aðila sem kann að fara með forsjá barns.

Umgengnistálmun er ofbeldi og það þarf að skilgreina það sem slíkt. Margir tálmunarforeldrar ólust sjálfir upp hjá tálmunarforeldri, þannig að ofbeldið gengur oft milli kynslóða eins og annað ofbeldi.

Ofbeldismaðurinn, tálmunarforeldrið, nýtur samúðar í tálmunarmálum og börnin fá enga aðstoð.

Til útskýringa, þá er ég alltaf að tala um tilefnislausa umgengnistálmun, enda er tálmun skilgreind þannig í lögum.


mbl.is Fá upplýsingar frá skóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Ísland best fyrir aðra?

"Ísland er best fyrir konur".

Ég er nokkuð viss um að þessi fullyrðing sé rétt í einum skilningi og margir vilja halda því fram að þessi fullyrðing eigi jafnvel við í tvennum skilningi.

Sennilega er jafnrétti hvergi meira en á Íslandi að sifjamálum undanskildum. Konur eru kúgaðar víða um heim og launamunur kynjanna víðast hvar mun meiri en á Íslandi. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart þó Ísland sé besta land í heimi fyrir konur.

Það er líka hægt að skilja þessa fullyrðingu þannig að Ísland sé betra fyrir konur en börn og karla. Það sé sem sagt best að vera kona á Íslandi, það sé betra en að vera karl eða barn. Það á vissulega ekki við um alla hluti því konur hafa til dæmis minni laun en karlar. En ef við berum saman rétt til fjölskyldulífs hjá konum, körlum og börnum sem þurfa að leita réttar síns hjá sýslumanni vegna umgengni, faðernis, meðlaga, lögheimilis barns eða öðru sem tengist sifjamálum, þá er langbest að vera konan. Ég held að það dyljist fáum að við meðferð sifjamála hjá sýslumönnum á eru það fyrst hagsmunir konunnar, svo barnsins og að síðustu karlsins sem tekið er tillit til. Það er því best að vera kona ef leita þarf til sýslumanns vegna rétts til fjölskyldulífs.


mbl.is Ísland er best fyrir konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foreldrahlutverkið

Þegar feður fengu 1 mánuð í fæðingarorlof þá minnkaði launamunur kynjanna, munurinn minnkaði aftur þegar feður fengu 2 mánuði og aftur þegar feður fengu þrjá mánuði. Fæðingarorlof feðra lengdis ekki meir og launamunurinn stóð í stað.

Eftir bankahrunið 2008 þá taka feður minna fæðingarorlof og launamunur kynjanna eykst.

Tengist þetta eða er þetta tilviljun?

Ég tel að þetta tengist. Til þess að ná fullkomnu jafnrétti þá þurfum við öll að breyta kröfum okkar og viðhorfum.

Uppeldi barnanna okkar þarf að vera jafnmikið á ábyrgð feðra og mæðra. Mæður bera mesta ábyrgð í dag á uppeldi barnanna ásamt annarri launalausri umönnun, svo sem umönnnun eldri borgara.

Framfærslukrafan þarf að vera jafnmikið á ábyrgð mæðra og feðra. Feður bera mesta ábyrgð í dag á framfærslu fjölskyldunnar.

Framkvæmd barnalaga hjá sýslumönnum landsins endurspeglar þessi hlutverkaskipti kynjanna þar sem mæður fara í 95,5% tilfella með lögheimili barns eftir skilnað, þær eru uppalendur og fá til þess fjárhagslegan stuðning frá ríki, sveitarfélögum og barnsföður. Faðirinn er skilinn eftir barnlaus með framfærsluskylduna (meðlagsgreiðslur).

Jafnrétti næst ekki fyrr en við áttum okkur á því að foreldrajafnrétti er grundvöllur jafnréttis á vinnumarkaði.


mbl.is Aukinn launamunur kynjanna skelfileg þróun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hitler hefði kunnað að meta starfsemi sæðisbanka

Með tilkomu sæðisbanka og frelsi kvenna til að velja sér nafnlausa sæðisgjafa eftir hæð, háralit, augnlit, menntun, kannski greindarvísitölu og fleira þá er hægt að stjórna "betur" en áður hverjir fá að lifa og hverjir ekki eins og stefna Hitlers gekk út á.

Ég er svo sem ekki alveg á móti sæðisbönkum og samþykki að í mörgum tilfellum er það réttlætanlegt og gott mál. En það eru margar siðferðislegar spurningar varðandi þessa banka og því miður þá eru margir siðferðisbrestir lögfestir í þessu sambandi.

Það að kona geti valið dökkhærðan sæðisgjafa í stað rauðhærðs eða ljóshærðs tel ég svo sem allt í lagi, en þegar börn getin með gjafasæði eru svipt uppruna sínum með þeim hætti að leyna þeim hver föðurinn er, og þá hver föðurfjölskyldan er, tel ég mjög gróft mannréttindabrot.


mbl.is Sæðisbanki hafnar rauðhærðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin að ná tökum á atvinnuleysinu?

Samkvæmt þessum spám verður enginn Íslendingur eftir á Íslandi einhvern tímann á milli 2020 og 2030. Atvinnuleysi verður því óþekkt á Íslandi og Ísland þá meðal fremstu þjóða í því efni ásamt Suðurskautslandinu reyndar.
mbl.is Sjö milljarðar Íslendinga í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkjahatur komið á mbl.is ?

Ég velti því fyrir mér hvort þeir sem halda á lofti samsæriskenningum um hriðjuverkaárásirnar 11. sept séu nokkuð betri en hriðjuverkamennirnir sjálfir.

Það er til fólk sem afneitar helför nasista að sama skapi og það er til fólk sem segir fórnarlömb kynferðisbrota hafa boðið uppá það að þeim var nauðgað. Ég tel þetta ekki einungis vera aumkunarvert fólk heldur einnig stórhættulegt fólk.

Aðstandendur fórnarlamba hriðjuverkanna í Bandaríkjunum 11.sept 2001 eiga allt annað skilið en þá fyrirlitningu sem fellst í þessum samsæriskenningum.

Ég held að Íslendingar hefðu bara gott af því að hugsa vel til Bandaríkjamanna án fordóma þó það væri ekki nema einn dag á ári. 11. september væri fínn dagur til þess.


mbl.is Turnarnir féllu „þægilega“ niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband