Loksins leyfilegt að gagnrýna jákvæða mismunun og kynjakvóta :)

Hingað til hefur það verið algert tabú að gagnrýna jákvæða mismunun og kynjakvóta. Þetta hefur verið verkfæri til að tryggja jafnrétti kynjanna og hafið yfir lýðræði.

Ég hef allaf verið andvígur kynjakvótum og fagna því þessari niðurstöðu í kosningu Framsóknarflokksins þar sem lýðræði er fótum troðið í nafni jafnréttis. Vopn kvennréttinda hreyfinga hafa snúist í höndum þeirra og vonandi átta þær sig á mistökum sínum.


mbl.is Siv efst í SV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Heimir, þarna er ég svo MIKIÐ sammála þér.   Það er nákvæmlega þetta sem hefur tíðkast hjá konum í Framsóknarflokknum, já núna finna þær fyrir því og ég segi sama og þú, vonandi læra þær núna af mistökunum. Ég sagði mig úr Framsóknarflokknum meðal annars út af þessu, þar sem lýðræðið hjá þeim hefur því miður verið fótum troðið, eins og þú orðar það. 

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 9.3.2009 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband